Allar vörur
Jólaúrvalið
Kíktu á jólaúrvalið okkar í ár
2025 Bæklingur
Mýs
Við höfum haft þessar mýs í mörg ár sem part af okkar upphaflegri hönnunarlínu en þær eru alltaf jafn vinsælar.
Verndari skógarins
Þetta er eitt af nýju hreindýrunum okkar í ár sem við lögðum mikla vinnu í að hanna og erum mjög stolt af útkomunni. Einstakur hlutur sem tekið er eftir.
Jólaenglar
Við höfum haft þessa fallegu og hlýlegu engla í nokkur ár en þeir eru hluti af okkar hönnunarlínu en þessi litur og áferð eru ný fyrir þetta ár.
Fréttir
Jólaþorpið í Hafnarfirði
Við höfum verið í Jólaþorpinu í Hafnarfirði frá árinu 2012 og verðum að sjálfsögðu í ár líka. Við verðum allar helgar í ár og erum mjög spennt að sýna mikið af nýjum vörum sem við erum með í ár.
Jólaþorpið opnar föstudaginn 14. nóvember og verður opið alla aðventuna á föstudögum frá kl. 17-20, laugardögum frá 13-20 og sunnudögum frá kl. 13-18.
Mánudaginn 22. desember verður opið frá 17-20 og á Þorláksmessu frá 13-21.
Meira
